Mér finnst ....

X-factor frekar glataður þáttur...

Ég veit að það eru margir sammála mér og ég ætla að taka það fram að þetta er mitt álit svo að enginn særist og enginn misskilji mig FootinMouth.... Fyrir það fyrsta finnst mér glatað að það séu enginn þema eins og ég Idolinu forðum daga.. þátturinn verður eitthvað svo sundurlaus án þema finnst mér, allir bara alltaf að syngja eitthvað sem hentar þeim og fá aldrei að sýna hvað þeir geta!!Angry Í öðru lagi þá er hallærislegt að mínu mati að dómaranir eigi sína eigin keppendur af því að þá verður dómarinn að standa með sínum manni sama hversu lélegur hann eða hún var....Að þessu upptöldu  er í rauninni ekki beint hægt að gagnrýna formið á þættinum svo mikið þar sem hann á sér fyrirmynd út í UK sem er gríðarvinsæll þar í landi.....Cool.......................EN....

 Það sem er í rauninni verst við þáttinn er hverslags fólk er að stjórna og sjá um þennan þátt...Jabb  nú ætla ég að drulla yfir það líkaW00t...surprise...surprise Grin....  Byrjum á byrjuninni....Halla, þáttastjórnandinn sem er reyndar búin að batna aðeins lætur mann nú sakna Simma og Jóa verð ég að segja....Hún er ekki fyndinn er alltaf að fipast (en minna samt en áður) og er bara stundum pínleg verð ég að segja...sorrí.... Fyrir utan það að hún virkar að vera fölsk og algert bitch ( Bara ég að vera abbó út af Jude Law sem hún svo snilldarlega nældi sér í um daginnGrin) en að því frátöldu þá er hún náttlega gullfalleg og geislandi....en samt!! Þarf nú meira til að stjórna þætti eins og Þessum....Cool Ég er samt ekki að bjóða mig fram samt sko..enda engin manneskja í það..þá væri nú Halla skárri af tveimur slæmum kostum Grin.....en höldum áfram!!! Dómararnir eru þarna víst líkaWink...Byrjum á Einari...frekar svona tippikal, veit sínu viti en er alltof tilfinninganæmur fyrir mína parta...sá ekki betur en að hann hafi næstum felt tár í síðasta þætti...en hvað veit ég, ég er ekki í þessum svakalega erfiðu aðstæðum sem hann er í!! Ég meina það erfiðasta sem hann hefur gert á ævinni sagði hann var að velja milli Jóhönnu og Já hópsins þarna um daginn... Þá er kannski ekki hægt að segja að hann eigi mjög bágt svona yfir höfuð LoL.......... Ellý er næst ...ómæ hvar á ég að byrja ....Ferlega flottir magavöðvar það má hún eiga sko Wink....en það er víst ekki það sem skapar góðan dómara....Hún ber þess alveg merki að hún hefur kannski experimentað aðeins of mikið að hinum ýmsu fíkniefnum og ég myndi segja að sýrutripp eða hassreykingar kæmu þar hæst í huga..Wink......þegar Ellý er að fara að segja eitthvað þá byrjar hún setninguna, dettur aðeins út og kemur svo inn aftur....svona smá eins og hún gleymi sér eða sé bara í öðrum heimi um stund.....ég hef allavega tekið eftir þessu en þið ??Wink......Fyrir utan þetta allt þá kann hún ekkert að syngja það er nú deginum ljósara..ég meina hvaða pönkarar kunna það annars?????? Sá síðasti er Palli...Tounge...sorrí ég hef bara ekkert vont um hann að segja....mér finnst hann eini maðurinn með viti og sem er eitthvað gaman að....Þannig að ég segi Go Palli Cool....hehe.... Keppendurnir eru víst þarna líka og ég eiginlega ætla ekki að tjá mig neitt um þá..þeir eru bara saklausir þátttakendur í þessu peningaplokki stöðvar 2...að reyna að verða frægir ..Á Íslandi... en ég meina einhversstaðar þarf maður að byrja....Mér finnst þau svaka misjöfn...eins og gengur og gerist bara ...........

En nóg af þessu....Heyrumst seinna....

P.S. Er það ekki X-factor á föstudag .....mar verður nú að vera með puttan á púlsinum Wink...........þetta álit mitt endurspeglar engan veginn álit þjóðarninnar og bla bla...vona ekki allavega .....Smile

Ída is out......Devil

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband